
Óhætt er að segja að tónleikar Arcade Fire á miðvikudagskvöldið síðasta hafi verið 6 klst lestarferða virði, og gott gott gott betur en það. Tónleikarnir voru í einu orði sagt hrein snilld enda ekki annað hægt þegar jafn geðveikt band með jafn geðveika músík er samankomin til að spila í crazy hljóðkerfi 25 metra frá manni. Og maður í bestu stúkusætum hússins. Ég var búinn að heyra að þeir væru góðir á sviði en vá! Þetta er tvímælalaust besta “live performance” sem ég hef orðið vitni að og kemst mjög ofarlega á listann yfir mína bestu tónleika, jafnvel alveg uppí þriðja sætið. Það er amk erfitt að hnika við Radiohead og Muse. Þau voru 10 talsins á sviðinu (eru samt bara 7 í hljómsveitinni) og var þetta eins og að horfa á sinfóníuhljómsveit spila indí rokk af bestu gerð. Ég ætla að reyna að telja upp öll hljóðfærin, þó ég eigi pottþétt eftir að gleyma einhverjum. Nokkrar tegundir rafmagnsgítara létu sjá sig, banjó, bassi, trompet, básúna, 2 fiðlur, venjulegt trommusett, annað mjög óvenjulegt svona hálfgert rafmagnstrommusett, banjó, kassagítar, píanó, orgel, harmonikka, eitthvað svona snúningsdót, svona ásláttarhljóðfæri svona kling kling úr járni, og svo svona sem maður hristir og ég get ekki munað hvað heitir. Líklega er ég að gleyma einhverju. Og öll hljóðfærin voru í gangi allan tímann! Og ekki nóg með þetta, heldur skiptust 7 manns af 10 á nær öllum hljóðfærunum á sviðinu! Aðalsöngvarar bandsins og stofnendur, Win og Régine fóru þar fremst í flokki. Þau sungu, spiluðu á rafmagnsgítar, banjó, kassagítar, harmonikku, trommur, slagverk, píanó og orgelið. Og sama gilti um hina. Þetta var alveg ótrúlegt. Eina sem ég get kvartað yfir var hljóðið í tveimur lögum, Haiti og Rebellion (Lies). Í Haíti var hljóðmaðurinn greinilega eitthvað annað að hugsa og eins í Rebellion þá var píanóleikurinn sem er stór partur af laginu í algjöru volli, og hreinlega skar í eyrun. En annars var hljóðið ótrúlega gott miðað við þessa litlu íþróttahöll sem tekur aðeins 3500 manns. Flottasta lagið var að mínu neighbourhood #3 (Power Out) þar sem allir 3500 áhorfendurnir stóðu og klöppuðu allan tímann við þennan geðveika takt sem er í laginu og í öðru sæti myndi ég segja Wake Up. Annars er erfitt að velja úr.
Ég mæli allavega með því að þeir sem ekki hafa kynnt sér þetta band skuli gera það strax! Neon Bible plötuna greip ég strax í byrjun en Funeral var ég aðeins lengur að meðtaka. Þær eru báðar svo hrikalega góðar að ég get ekki gert uppá milli lengur, fannst Neon mun betri fyrst. Og eins er fyrsta stykkið þeirra EP platan þrusugóð. Allar þessar þrjár plötur fara mjög ofarlega á listann minn yfir bestu plötur í sögunni, det er helt klart ! Fyrir ykkur Arcade Fire fólkið þarna úti þá var lagalistinn nánast alveg eins ef ekki bara akkúrat sá sami og þau tóku í Noregi fyrir um viku síðan með reyndar 2-3 lögum til viðbótar: Black Mirror, Keep The Car Running, Neighbourhood #2 (Laika), No Cars Go, Haiti, In the Backseat, My Body Is a Cage, Ocean Of Noise, Surf City Eastern Bloc, Old Flame, Neighbourhood #1 (Tunnels), The Well And The Lighthouse, Crown of Love, (Antichrist Television Blues), Neighbourhood #3 (Power Out), Rebellion (Lies). Encore: Intervention, Wake Up
Í gær var farið á innanhússæfingu með Heklunni og eftir það í buzz, bjór, pílu, bjór, póker og bjór heima hjá Stymma en Gunnar Heiðar og Bjarný eru hér í heimsókn og svo komu Hlynur Ágústs og Ingibjörg líka á fimmtudaginn. Þannig að það var sannkölluð eyjastemning og helvíti gaman. Pókerinn náði til næstum því fjögur í nótt og fór svo að ég tók pottinn sem var 5000 ísl kr (400 dk) og það var ekki leiðinlegt og ég fékk í leiðinni Bubba tónleika live í gegnum símann en hössi og kassi voru duglegir að hringja og leyfa mér að hlusta... hefði verið gaman að vera á leikum með kóngnum.... En svo verður eitthvað flippað í kvöld og verður án efa farið í buzz aftur enda tapaði ég í því í gær og það er ég ekki sáttur með....
mvh, Einar